Beðahreinsun
Beðahreinsun
Við sinnum beðahreinsun í görðum, hvort heldur sem um er að ræða létta laufhreinsun á haustin og snemma á vorin eða ítarlega hreinsun í garðinum fyrir og um sumarið.
Starfsfólk okkar hefur margra ára reynslu við hreinsun beða og við leggjum mikla áherslu á vönduð og hröð vinnubrögð.
Við beðahreinsun er yfirleitt um 4-6 manna teymi að ræða sem er með öll verkfæri sem til þarf við að hreinsa garðinn, auk véla sem eru nauðsynlegar í vissum tilfellum. Má þar nefna vélkantskera, orf og mjög öflugan blásara sem flýtir mikið fyrir allri hreinsun og frágangi í lok verks.
Með hverjum beðahreinsunarhóp er verkstjóri sem gætir þess að verkið sé unnið samkvæmt óskum viðskiptavinar.
Við notum stóra og rúmgóða sturtukerru sem auðveldar fjarlægingu og losun á jarðúrgangi sem fellur til eftir hreinsun. Með því spörum við ferðir á losunarstaði og um leið mikinn tíma sem skilar sér beint í minni kostnaði fyrir viðskiptavini okkar.
Við bjóðum einnig upp á að setja áburð í beð eftir beðahreinsun. Áburður hjálpar gróðrinum að dafna og gefur trjám og plöntum næringu.
Áburðargjöf má sinna frá maí og fram í miðjan júlí en eftir þann tíma er almennt best að leyfa gróðrinum að undirbúa sig fyrir veturinn.