fbpx

Friðhelgisstefna

Persónuupplýsingar sem unnið er með þegar þú hefur samskipti við Hreinir Garðar.

Þegar þú átt í samskiptum við fulltrúa sem starfa fyrir viðskiptamannaþjónustu okkar í tölvupósti, síma, á netinu eða augliti til auglitis söfnum við persónuupplýsingum eins og nafni, póstfangi, símanúmeri, tölvupóstfangi og kjörstillingu á samskiptum og upplýsingum um vörur sem þú átt frá Hreinir Garðar fyrirtækinu, eins og raðnúmer og dagsetningu viðskipta.

Til að bæta viðskiptamannaþjónustu okkar, með fyrirvara um gildandi lög, gætum við jafnframt skráð og farið yfir samtöl við fulltrúa sem þjónusta við viðskiptamenn og greina endurgjöf sem okkur var veitt af frjálsum vilja í viðskiptamannakönnunum. Fulltrúar sem þjónusta viðskiptamenn okkar gætu eftir atvikum og með leyfi þínu skráð sig á reikning Hreinir Garðar fyrirtækis þíns til að hjálpa til við að greiða úr flækjum og leysa úr vanda sem upp hefur komið.

TILGANGUR OG LAGALEGAR FORSENDUR:

Við notum þessar upplýsingar til að láta þér í té viðskiptastuðning og stuðning vegna vörukaupa og einnig til að fylgjast með gæðum og tegundum viðskiptamannastuðnings og stuðnings vegna vörukaupa sem við veitum viðskiptavinum okkar. Lögmætar forsendur fyrir því að vinna úr þessum upplýsingam að því er þetta varðar eru lögmætir hagsmunir Hreinir Garðar fyrirtækisins sem felast í því að veita vandaðan stuðning vegna vörukaupa. Samþykki þitt, sem þú getur dregið til baka, eru þær lögmætar forsendur sem með þarf til að við skráumokkur inn á reikning þinn hjá Hreinir Garðar eru eftir atvikum til að hjálpa við að greiða úr flækjum og leysa vanda þinn.

Flokkar viðtakenda persónuupplýsinga

Aðrir þjónustuveitendur:

Hreinir Garðar notar skýjaþjónustu þriðju aðila eins og MAILCHIMP eða MEILPOET til að aðstoða við að senda tölvupósta. Þjónusta þessi fylgist með starfsemi sem tengist þessum tölvupóstum, hvort þeir séu opnaðir, á hvaða tengla var slegið á og hvort viðskipti hlutust af því að opna þessa tengla. Hreinir Garðar notar þessi gögn til að greina hversu mikil þátttaka hlaust af þessum tölvupóstum. Hreinir Garðar notar þjónustuveitendur úr hópi þriðju aðila til að senda keyptar vörur og hjálpa okkur við að skilja betur notkun á vefverslun Hreinir Garðar, auk vefsetra og smáforrita Hreinir Garðar.

Önnur upplýsingagjöf:

Við gætum veitt öðrum persónuupplýsingar um þig: a) ef við höfum gilt samþykki til að gera svo, b) til að hlíta gildri vitnastefnu, lagaskyldu, dómsúrskurði, lagalegu ferli eða öðrum lagalegum skuldbindingum, c) til að framfylgja skilmálum, skilyrðum og stefnu okkar, eða d) eins og nauðsyn krefur til að fylgja tiltækum lagaúrræðum eða verja lagalegar kröfur. Við gætum einnig flutt persónuupplýsingar þínar til hlutdeildarfélags, dótturfélags eða þriðja aðila þegar gerðar eru skipulagsbreytingar, við samruna eða sölu fyrirtækisins, stofnun fyrirtækis um sameiginlegt verkefni, sértækt verkefni, yfirfærslu eða annars konar tilfærslur á allri starfsemi eða hluta hennar, öllum eigum eða birgðum Hreinir Garðar eða hluta þeirra, þ.m.t og án takmarkana í sambandi við gjaldþrotameðferðir eða svipaðar meðferðir, að því tilskildu að slík starfseining sem við yfirfærum persónuupplýsingar til hafi ekki heimild til að vinna úr öðrum persónuupplýsingum þínum en tilgreint er í stefnu okkar varðandi friðhelgi einkalífsins og án þess að láta þér í té tilkynningu þess efnis og, ef gildandi lög krefjast þess, fá samþykki þitt til þess.

Samfélagsmiðlar:

Þriðju þjónustuaðilar samfélagsmiðla sem láta í té gagnvirkar íbætur (e. plug-ins) eða þætti í samfélagsmiðlum (t.d. til að heimila þér að tengjast Facebook eða Twitter í því skyni að finna vini til að bæta við í tengslahópinn eða til að „læka“ síðu) um vefsetur eða smáforrit fyrir farsíma Hreinir Garðar, gætu notað vafrakökur eða aðrar aðferðir (t.d. vefvita (e. web beacons)) til að safna upplýsingum um notkun þína á vefsetrum eða smáforritum. Þriðji aðili styðst við stefnu sína varðandi friðhelgi einkalífsins, sem tiltæk er á samfélagsmiðlinum, við að nota slíkar upplýsingar og leggjum við til að þú skoðir hana ítarlega. Slíkir þriðju aðilar gætu notað þessar vafrakökur eða aðrar ferilskoðunaraðferðir í eigin skyni með tengja upplýsingar um notkun þína á vefsetri okkar við þær persónuupplýsingar sem þeir gætu ráðið yfir um þig. Við gætum einnig komist yfir greiningarupplýsingar frá samfélagsmiðlum sem hjálpa okkur að mæla skilvirkni efnisinntaks okkar og auglýsinga á samfélagsmiðlum (t.d. þrykk eða áslátt).

Börn

Við óskum eftir því að einstaklingar undir 16 ára aldrei veiti ekki Hreinum Görðum persónuupplýsingar. Ef við komumst að raun um að við höfum safnað saman persónuupplýsingum frá barni undir 16 ára aldri munum við grípa til aðgerða í því skyni að eyða þeim upplýsingum eins fljótt og auðið er.

Uppfærslur á stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins

Við gætum uppfært af og til þessa stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins þegar við bætum við nýjum vörum og smáforritum og þegar við bætum núverandi framboð okkar og um leið og tækni- og lagabreytingar verða. Þú getur séð hvenær þessi stefna varðandi friðhelgi einkalífsins var síðast endurskoðuð með því að líta til „Síðast uppfærð“ eða „Last updated“ skýringartextann efst á þessari síðu. Breytingar taka gildi þegar við setjum inn endurskoðaða stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins.

Við munum tilkynna þér ef þessar breytingar eru efnislegar og, ef þess er krafist í gildandi lögum, að óska eftir samþykki þínu. Þessi tilkynning verður veitt með tölvupósti eða með því að setja inn tilkynningu þess efnis á vefsetur og smáforrit Hreinir Garðar sem tengjast þessari stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins.

Varðveisla persónuupplýsinga

Við munum geyma persónuupplýsingar þínar eins lengi og aðgangur þinn hjá vefsíðu Hreinir Garðar er talinn virkur. Einnig má leita undir „Réttur þinn“ eða „Your rights“ til að finna lýsingu á réttindum þínum til að vera viss.

Gagnastýringar- og gagnaverndunarstarfsmaður

Persónuupplýsingum sem Hreinir Garðar safna um þig er stjórnað af Hreinir Garðar ehf sem hefur aðsetur á Víkurhvarf 4, 203 Kópavogur – Íslands. Gagnaverndunarstarfsmaður Hreinir Garðar hefur aðsetur á sama heimilisfangi og má einnig hafa samband við hann um hreinirgardar@hreinirgardar.is.

Réttur þinn

Sért þú með búsetu í Evrópusambandinu (eða á EES-svæðinu þegar viðkomandi reglugerð ESB hefur einnig tekið gildi þar) hefur þú réttindi samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR) til að fá aðgang að og leiðrétta eða eyða persónuupplýsingum þínum, takmarka færanleika gagna og vinnslu persónuupplýsinga þinna, og réttindi til að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna og rétt til að leggja fram kvörtun til eftirlitsyfirvalda. Sért þú með búsetu utan Evrópusambandsins (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) gæti þó verið að þú hafir í þessu sömu réttindi samkvæmt innlendum lögum.

Til að krefjast aðgangs að og leiðrétta, takmarka færanleika eða eyða persónuupplýsingum þínum eða hætta með reikning þinn hjá Hreinir Garðar geturðu haft samband við okkur á hreinirgardar@hreinirgardar.is.

Sért þú með búsetu í Evrópusambandinu (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) og óskar eftir að nýta rétt þinn til að takmarka vinnslu á eða réttindi þín til að mótmæla vinnslu á persónuupplýsingum þínum geturðu haft samband við gagnaverndunarstarfsmann okkar á lögheimili okkar eða með tölvupósti í hreinirgardar@hreinirgardar.is. Sért þú með búsetu utan Evrópusambandsins (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) en teljir þig hafa réttindi til að takmarka vinnslu á eða réttindi til að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna samkvæmt lögum í heimalandi þínu, skaltu vinsamlegast hafa samband við gagnaverndunarstarfsmanninn á hreinirgardar@hreinirgardar.is.

Hafðu samband í síma 571-2000 eða sendu okkur fyrirspurn SENDA FYRIRSPURN