




Skógarmönsarinn fræsir niður runna, minni tré og smærri stofna af trjám. Enska orðið yfir Skógarmönsarann er „forest mulcher“.
Skógarmönsarinn tætir stubbana og kurlar allt efnið niður á staðnum svo óþarfi er að fjarlægja efni.
Skógarmönsarinn er svipaður og stubbatætari en mun afkastameiri þegar kemur að því að tæta niður runna, skjólbelti eða minni stubba. Hann er um 130 cm á breidd og á beltum, svo hann veldur litlu raski á umhverfi. Vélin er fjarstýrð svo mjög auðvelt er að vinna með hana.
Helstu kostir mönsarans umfram venjulegan stubbatætara er að hann kurlar allt efni niður á staðnum og sparar þannig mikinn tíma við að saga niður runna og frágang eftir tætingu. Hann er nógu öflugur til að fræsa niður heil skjólbelti og tré án þess að þörf sé á að saga þau niður á undan.
Á móti kemur að vélin hentar ekki jafn vel þegar um er að ræða stærri trjástubba og rætur. Þá er stubbatætarinn hentugri vél. Mönsarinn tætir ekki jafn djúpt niður fyrir jarðveginn og er meira hugsaður til að losa burt skjólbelti og/eða limgerði þar sem hann sléttir úr svæðinu svo hægt sé að ganga frá því í kjölfarið, t.d. með tyrfingu.
Þessi vefsíða notast við vafrakökur (e. cookies) til að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar og hámarka upplifun í netversluninni okkar. Sumar vafrakökur eru mikilvægar fyrir margvíslegar þjónustuleiðir en aðrar eru notaðar til að safna tölfræðilegum upplýsingar til að bæta vefsíðuna, svo framarlega sem það sé með þínu samþykki.