Garðsláttur

Garðsláttur

Lykillinn að fallegri flöt og fallegum garði er reglulegur og vandaður sláttur. Við bjóðum upp á garðslátt í áskrift fyrir einkagarða, húsfélög og fyrirtæki þar sem slegið er á tveggja vikna fresti.

Garðsláttur í áskrift tryggir að flötin verður snyrtileg og vel hirt allt sumarið. Við miðum við að slá á tveggja vikna fresti allt sumarið og erum þá að byrja í lok maí og hætta slætti í lok ágúst.

Hversu oft Á að slá

garðinn yfir summarið

Hversu oft Á að slá

garðinn yfir sumarið?

Garðsláttur er ódýrasta og skilvirkasta leiðin til að viðhalda fallegum garði. Aðalatriðið við að halda grasinu heilbrigðu og fallegu yfir sumarið er reglulegur sláttur og það sakar ekki ef honum fylgir regluleg áburðargjöf.

Við miðum við að slá á u.þ.b. 14 daga fresti frá miðjum maí til mánaðamóta ágúst og september. Í einhverjum tilfellum þarf að slá oftar, sums staðar sjaldnar.

Við mælum almennt gegn því að slá sjaldan til að spara sér kostnað eða vinnu. Það fer bæði illa með grasflötina og gerir það erfiðara að ná fallegum slætti. Sparnaðurinn fer líka oft fyrir lítið þegar kemur svo að því að fara í aðgerðir til að endurnýja illa farna flöt sem fengið hefur lítið viðhald.

Í raun mætti segja að því oftar sem slegið er, því betri og heilbrigðari verður flötin.

garðsláttir og Áburðargjöf

gegn mosa

Garðsláttur og Áburðargjöf

gegn mosa

Besta vörnin gegn mosa er gott viðhald grasflatarinnar. Það þýðir einfaldlega; regluleg áburðargjöf og reglulegur garðsláttur. Við bjóðum upp á áburðargjöf í áskrift meðfram garðslættinum.

Í áburðargjöfinni miðum við almennt við að gefa áburð þrisvar yfir sumarið, alltaf strax í kjölfarið á slætti. Áburðargjöf hæfist þá í kjölfar fyrsta sláttar um vorið og gefinn er áburður í annaðhvert skipti fram að u.þ.b. miðjum júlí. Eftir það er í raun ekki lengur þörf á að gefa áburð. Eftir því sem nær dregur hausti fer grasflötin að búa sig undir vetrardvala.

Með reglulegum slætti og reglulegri áburðargjöf styrkist rótarkerfi grassins, flötin verður grænni, heilbrigðari og fallegri. Það hlýtur að vera markmið hvers garðeiganda.

Garðsláttur fyrir stærri

svæði og bæjarfélög

Garðsláttur fyrir stærri

svæði og bæjarfélög

Við sinnum slætti fyrir bæjarfélög, stofnanir og aðra stærri aðila. Þar notum við stærri og öflugri vélar sem henta betur fyrir slíkan slátt . Traktor með sláttuvagni fyrir stór opin svæði, sláttutraktorar og fjarstýrðar brekkuvélar eru meðal þeirra tækja sem við nýtum í þá þjónustu. 

Við höfum sinnt slætti fyrir flest bæjarfélög höfuðborgarsvæðisins og búum að góðum tækjakosti og mikilli reynslu við smærri og stærri verkefni

Senda fyrirspurn