Þökulagnir

Þökulagnir

Við tökum að okkur að tyrfa garða. Við getum útvegað undirlagsefni og torf ásamt því að sinna vinnunni sjálfri.

Starfsfólk okkar hefur margra ára reynslu við þökulögn og við leggjum mikla áherslu á vönduð vinnubrögð, sem skila sér í sléttri og fallegri flöt.

Það er hægt að tyrfa frá vori og vel fram eftir hausti. 

Oft eru þökulagnir sniðug leið til að auðvelda viðhald garðs en halda samt náttúrulegu yfirbragði lóðarinnar.

Margir kannast við að garðurinn sé of flókinn, of mörg beð til að hreinsa og of lítill tími til að sinna lóðinni. Þá getur verið sniðugt að einfalda lóðina, fækka beðum og endurskipuleggja í takt við eigin þarfir. Þá getur þökulögn verið hagkvæm og góð lausn.

Það er mikilvægt að gæta þess þegar tyrft er að nota áburð og passa vökvun vel í kjölfarið á meðan grasið er að jafna sig. 

Torf í garði - Þökulagnir

Senda fyrirspurn