Trjákurlun
Við bjóðum upp á þá þjónustu að koma og kurla trén fyrir ykkur eða með ykkur. Auk þess er líka hægt að leigja kurlara hjá okkur ef fólk treystir sér til að sinna verkinu sjálft.
Við erum með 2 stærðir af kurlurum. 6″ kurlara á hjólum sem tekur 15cm breitt efni og svo 8″ kurlara á beltum sem tekur 20cm breitt efni. Kurlararnir eru með hraðastýringu sem gerir okkur kleift að ráða stærðinni á kurlinu eftir því í hvað á að nota það.
Kurlun er mun hagkvæmari leið en að farga trjánum ókurluðum. Bæði losnar maður þannig við förgunargjald, sem iðulega er rukkað á losunarstöðum og ekki þarf að fara jafn margar ferðir með efni til förgunar.
Almennt gerum við ráð fyrir vinnu við kurlun í öllum stærri trjáfellingum sem við tökum að okkur, þar sem við náum þannig að halda förgunarkostnaði niðri fyrir viðskiptavin og fækkum tímum sem fer í að keyra á losunarstað.
Það er hægt að leigja kurlara með starfsmanni og án. Leiguverðið tekur þá mið af því. Kurlararnir sjálfir eru einfaldir og þægilegir í notkun.