Útkeyrsluvagn

Útkeyrsluvagn frá Kranman

Útkeyrsluvagn

Útkeyrsluvagnarnir frá Kranman eru ótrúlega nettir en sterkir og henta gríðarlega vel til vinnu við trjáfellingar og grisjanir.

Hægt er að fá þá útbúna á fjórhjól en einnig aftan í dráttarvél.

Vagnarnir bera á milli 1,5 – 2,0 tonn. Kraninn lyftir 500 kg næst sér. 

Útkeyrsluvagn Kranman Hreinir Garðar

T1750 útkeyrsluvagn

T1750 er mjög flottur útkeyrsluvagn. Hann getur verið frá 3,65 – 4,23 m á lengd og 1,42 m á breidd.

Hann kemur klár með Honda GX 240 mótor og glussadælu sem fer ofan á fjórhjólið.

Kraninn lyftir 240kg í 3 metrum en 500kg í 1,2m. Vagninn er með Robson drifi sem jafnsnýr öllum 4 dekkjunum á vagninum sem gerir það nánast ómögulegt að festa hann.

Hægt er að fá útkeyrsluvagn með allskonar aukabúnaði. t.d. rafstart, vinnuljós, beygju á beisli, spil sem dregur allt að 1.000kg, sturtuvagn, krabba og fleira.

T1950ex útkeyrsluvagn

T1900ex er gríðarlega öflugur útkeyrsluvagn. Hann er 3,85 m á lengd og 1,36 m á breidd.

Hann kemur klár með Honda GX 390 mótor og glussadælu sem fer ofan á fjórhjólið.

Kraninn lyftir 240kg í 3 metrum en 500kg í 1,2 metrum. Vagninn er með robson drifi sem jafnsnýr öllum 4 dekkjunum á vagninum sem gerir það nánast ómögulegt að festa hann.

Hægt er að færa til staðsetningu dekkjanna til að breyta þyngdarpunkti ballestarinnar á vagninum.

Hægt er að fá allskonar aukabúnað með vagninum. t.d. rafstart, vinnuljós, beygju á beisli, spil sem dregur allt að 1.000kg, sturtuvagn, krabba og fleira.

Ekki hika við að hafa samband

Hvort sem um ræðir ábendingu eða  tilboðsbeiðni  – þá er þér meira en velkomið að senda okkur skilaboð hér og við munum svara eins fljótt og kostur er.

Hreinir Garðar er umboðs- og þjónustuaðili Kranman á Íslandi