TENDRUM JÓL Í HVERJU HJARTA

Jólaskreytingar fyrir einstaklinga

Fyrir jólin bjóðum við upp á jólaskreytingar fyrir garða og heimili.
Við seljum jólaseríur, setjum þær upp og tökum niður eftir jól sé þess óskað. Auk þess bjóðum við upp á geymslu á jólaseríum á milli ára endurgjaldslaust.

Jólaskreytingar fyrir einstaklinga

Tendrum jól í hverju hjarta

Fallegar jólaskreytingar lýsa upp skammdegið og tendra jól í hverju hjarta. Við það að vanda val á seríum og uppsetningu endast seríurnar mun lengur. Með því að halda þeim við og mögulega endurnýja seríurnar hægt og rólega í gegnum árin er hægt að halda sömu skreytingunni gangandi ár eftir ár eftir ár. Margar af okkar skreytingum hafa staðið uppi í yfir 13 ár með smá ást og umhyggju fyrir jólin. 

Hvað á að skreyta

Það getur verið erfitt val hvað á að skreyta. Það þarf ekki að velja stærsta tréð eða þakskeggið allan hringinn svo skreytingin sé falleg. Oft eru minni skreytingar alveg jafn fallegar og þær stærri. Aðal atriðið er að skreyta það sem fær að njóta sín best. 

Jólaskreytingar fyrirtæki appstýrðar jólaseríur

APP stýrðar jólaseríur

Við seljum og sinnum PRO app stýrðum jólaseríum. Ljósamynstrinu er stjórnað með appi sem þýðir að hægt er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og leika sér með ljósin. Þetta gefur líka möguleikann á að nýta seríurnar lengur og við fjölbreyttari tilefni. T.d. bleikan október, bláa naglann, afmæli, veislur og áramót.

Jólaseríur sem endast

Við notum eingöngu hágæða seríur sem hafa sannað sig á Íslandi. Nánast allar okkar seríur er lágspenntar en ekki 230v eins og algengt er. Kosturinn við lágspenntar seríur er að spennan er það lág að vatn hefur ekki jafn mikil áhrif á þær og þær eru ólíklegri til að slá út rafmagni. 

Senda fyrirspurn

Samstarfsaðilar frá 2010