FÖRUM ALLA LEIÐ Í ÁR

Jólaskreytingar fyrir Fyrirtæki

Það er vitað að jólin eru frábær tími fyrir verslun og þjónustu. Jólaskreytingar hjálpa fyrirtækjum að vera sýnilegri auk þess að færa jólaandann yfir viðskiptavini. Við sinnum sölu, uppsetningu og ráðgjöf. 

Jólaskreytingar fyrirtæki appstýrðar jólaseríur

APP stýrðar jólaseríur

Við seljum og sinnum PRO app stýrðum jólaseríum. Ljósamynstrinu stjórnað með appi sem þýðir að hægt er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og leika sér með ljósin. Þetta gefur líka möguleikann að nýta seríurnar lengur og við allskonar tilefni. T.d. bleikur október, blái naglinn, afmæli, veislur og áramót.

Ótrúlegar byggingar

Á nokkuð einfaldan hátt er hægt að setja nánast hvað sem er á veggi bygginga. Allt frá flugeldasýningu yfir í sérsniðið auglýsingaefni og texta. Perufjöldinn virkar eins og skjár þar sem hver pera er talin sem 1 pixel. 

Nýtum seríurnar allt árið um kring

Með app- stýrðum seríum er hægt að breyta í hvaða lit sem og hvar á trénu eða veggnum sem er. Þetta opnar möguleikann á að nota seríurnar við allskonar tilefni. T.d. bleikur október, blái naglinn, gleðigangan og svo framvegis.

Falleg ásýnd fyrirtækja

Fallegar jólaskreytingar eru frábær auglýsing fyrir fyrirtæki.  Inngangurinn setur andrúmsloftið sem verið er að ganga inn í. Við mælum með einföldum, snyrtilegum og fallegum skreytingum við innganginn til að kynda undir jólastemmninguna.

Láttu þitt fyrirtæki skara framúr

Fallega lýst hús vekja mikla athygli og gefa af sér gott umtal. Að lýsa upp skammdegið með fallegum seríum gefur öllum yl í hjartað og hjálpar okkur í mesta skammdeginu. 

Senda fyrirspurn

Samstarfsaðilar frá 2010